Ybbsstraβe 99
28. ágúst árið 1984 bað Fritzl 18 ára dóttur sína, Elisabeth, að aðstoða sig við að flytja nýja hurð í kjallara húss þeirra. Þegar þangað var komið var hún handjárnuð og gefið dóp. Þaðan fór hún ekki aftur fyrr en eftir 24 ár. Allt átti þetta sér stað í kjallara hússins þar sem Fritzl bjó ásamt konu sinni, Rosemarie og ýmsum leigjendum.
BrotiðMikil undirbúningsvinna lá að baki glæpsins. Fritzl stækkaði hús sitt yfir nokkurra ára tímabil, útbjó m.a. lítill kjallara undir þeim kjallara sem þegar var til staðar. Auk þessa smíaði Fritzl hálfgert virki frá umheiminum umhverfis heimili sitt, í þeim tilgangi að fela sig frá nágrönnum sínum. Verandi bæði verkfræðingur og rafvirki útbjó Fritzl rafmagnslása á hurðar svo ekkert var hægt að fara. Eftir fæðingu fyrstu barnanna stækkaði hann kjallarann, til þess að þurfa ekki að nauðga henni að börnunum sjáandi.
|
Rosemarie tilkynnti hvarf Elizabeth strax daginn eftir en ekkert gerðist. Það var svo að nokkrum vikum liðnum sem Fritzl afhenti lögreglunni bréf sem hann sagði vera frá Elisabeth. Í því stóð að ef tilraun yrði gerð til að finna hana myndi hún hverfa fyrir fullt og allt. Undir stjórn föðurs síns skrifaði hún svo fleiri bréf, m.a. þess efnis að hún hafi gengið í sértrúarsöfnuð. Á þessum 24 árum ól hún honum, föður sínum, 7 börn. Elst er Kerstin, fædd 1988, þar á eftir Stefan ´90 og Lisa árið 1992. Af einhverjum ástæðum, líklega vegna þrengsla, tók hann Lisu frá móður sinni, setti hana í pappakassa og lét fylgja með henni bréf þess efnis að biðja foreldra sína um að sjá um hana. Vakti bréfið þó engar spurningar yfirvalda og var ættleiðing heimiluð. Tveimur árum síðar færði hann konu sinni Moniku en lét þá Elisabeth hringja í móður sína og óska eftir að hún tæki hana að sér. Vakti það ekki athygli yfirvalda að Fritzl hjónin væru skyndilega komin með nýtt og óskráð símanúmer. Elisabeth eignaðist tvíburana Alexander og Michael árið 1996. Því miður lést Michael stuttu eftir af óþekktum orsökum. Fritzl brenndi hann í ofninum en fór með Alexander upp. Að lokum, árið 2002 átti hún Felix sem fékk að dvelja hjá móður sinni. Í það skiptið lét Fritzl duga að senda Rosemarie bréf þess efnis að Elisabeth hafi eignast annað barn. |
Fritzl lifði því, eins og gefur að skilja, tvöföldu lífi. Hann eyddi nokkrum kvöldum í viku í kjallaranum þar sem hann horfði með þeim á sjónvarpið. Til þess að nágrannana grunaði ekkert verslaði hann fyrir Elisabeth og börnin í öðrum bæ. Hræðsluáróður notaði Fritzl til að koma í veg fyrir að Elisabeth reyndi að flýja. Hann sagði þeim m.a. þau yrðu drepin með gasi eða gefið raflost.
Þó undarlegt megi virðast hefðu þau ekki þurft að dúsa í kjallaranum ef Fritzl hefði látist, sökum þess að lásarnir voru stilltir á þann hátt að þeir opnuðust ef þeir yrðu ekki opnaðir eftir ákveðinn tíma.
Í apríl 2008 veiktist Kerstin, þá 19 ára, illa. Elisabeth náði að sannfæra Fritzl að fara með hana á sjúkrahús, en vissulega skrifaði hann bréf þess efnis að móðirin hafi yfirgefið barnið og bað læknana að hjálpa henni. Þessi aðferð hans þótti trúverðug, líkast til vegna fyrri bréfaskrifta. En vegna erfiðleika læknanna við að finna hvað hrjáði Kerstin voru sendar út beiðnir frá fjölmiðlum til Elisabeth um að gefa sig fram og þannig hjálpa þeim. Enn náði hún að sannfæra föður sinn og hún fer á sjúkrahúsið. Yfirvöldum sjúkrahússins fannst endurkoma hennar þó undarleg og höfðu samband við lögreglu sem svo yfirheyrði feðginin sitt í hvoru lagi. Þá komu ósköpin í ljós.

Ástæður & greining
Josepf Fritzl fæddist árið 1935 í Amstetten í Austurríki. Ólst hann því upp á tímum nasisma þar sem skipulag og yfirvald var talið gífurlega virðingarvert og kennir hann nasismanum um það innræti sitt sem leiddi hann til þess að fremja glæpinn. Viðbrögð hans við uppreins Elisabeth, þ.e. að læsa hana inni, hafi einfaldlega verið ómeðvituð.
Löngum hefur verið talið að þeir sem hljóta harðneskjulegt og ofbeldisfullt uppeldi veiti eigin börnum slíkt hið sama. Fritzl er um það gott dæmi en sagði hann í viðtali við sálfræðinga að móðir hans hafi takmarkað sýnt honum ást heldur aðeins barið hann til óbóta. Fritzl var því strangur hvað varðaði uppeldi og vildi fá sínu fram. Hann kenndi börnum sínum að vera ávallt hlýðin og kurteis og refsingar voru fyrir honum ekki vandkvæði. Hann átti því erfitt með að sætta sig við það þegar Elisabeth fór að verða uppreisnargjörn og m.a. strjúka að heiman. Ákvað hann því að „bjarga“ henni frá hinum hættulega og áhrifaríka umheimi. Síðar meir talaði hann um að honum hafi þótt dóttir sín ómótstæðileg sem og hugmyndin um að eiga með henni fjölskyldu og börn. Rétt er að nefna að Fritzl hafði nauðgað Elizabeth þegar hún var aðeins um 10 ára gömul. Honum þótti Elizabeth einnig minna hann á móður sína, sem var jafn ströng og ofbeldisfull og Fritzl sjálfur, líkt og áður segir. Hann stjórnaði þó ekki aðeins börnum sínum með harðir hendi heldur var kona hans Rosemarie sögð einkar undirgefin og hafði lítið sem ekkert um m.a. heimilishald að segja.
Að utanverðu virtist ekkert athugavert að finna við Joseph Fritzl, hann keyrði um á fínum Benz, klæddist snyrtilega og átti fallegt heimili. Leyndarmálin var þó að vinna víða. Heimildir herma að Fritzl hafi setið í fangelsi í tæp tvö ár árið á 7. áratugnum. En vegna laga sem í gildi voru í Austurríki í þá tíð voru brot þurrkuð út eftir 15 ár og því ekkert á skrá um kynferðisbrot þegar hann tók að sér börn Elizabeth.
Barnaníð
Barnaníð er afbrigðileg kynlífslöngun sem fullnægt er með barni sem venjulega er 13 ára að aldri eða yngra. Samkvæmt skilgreiningunni er níðingurinn eldri en 16 ára og minnst 5 árum eldri en fórnarlambið. Breytilegt er þó hvaða aldur eða kyn barnaníðingar girnast. Bæði finnast dæmi þess sem barnaníðingar girnast aðeins börn en einnig fullorðna einstaklinga. Þess má þó geta að þeir einstaklingar sem hafa kynferðislegar hvatir í garð barna og svara þeim þörfum falla undir flokk barnaníðinga, ekki aðrir.
Barnaníðingur getur verið hver sem er, stétt eða baksaga einstaklings skiptir þar í raun ekki máli. Margvíslegar rannsóknir hafa verið framkvæmdar og m.a. er talið að þeir sem beita börn kynferðislegu ofbeldi, hafa oftar en ekki sjálfið verið misnotaðir í æsku.
Fyrir nánari upplýsingar um barnaníð vísa ég í aðra undirsíðu hér, „Phaedophilia“.
Siðblinda & siðleysi
Talið er að hundraðist hver einstaklingur sem verður á vegi þínum á lífsleiðinni sé siðblindur. Taka þarf til greina að siðblinda er ekki bara svolítil hjá einstakling og mikil hjá þeim næsta, heldur er hann siðblindur eða ekki. Viðkomandi virðir ekki hinar óskráðu reglur samfélagsins eða rétt og eigur brotaþola hans. Hér má þó nefna mun þess að vera siðblindur og siðlaus. Siðblindingi skilur ekki afleiðingar gerða sinnar en siðlaus einstaklingur skilur þær og sér, en veltir því ekki frekar fyrir sér.
Robert D. Hare skipti greiningu siðblindu í tvo megin þætti, þáttur 1 leggur mat á kjarnaeinkenni hennar og þáttur 2 lýsir lífstíl og annarri andfélagslegri hegðun.
Siðblindur einstaklingur er yfirborðskenndur hvað varðar persónutöfra og tilfinningalíf, lítur mjög stórt á sig og er kaldlyndur gagnvart nágunganum. Lygar eru algengar auk þess sem viðkomandi getur reynst falskur og hefur þörf fyrir að vera í sífellu með stjórnina. Viðkomandi er ábyrgðarlaus og hvatvís. og kennir öðrum um og skortir þá einnig sektarkennd.
Siðblinda kemur einnig fram í félagslegum lífstíl. Viðkomandi er spennufíkill og vill gjarnan lifa á öðrum. Léleg sjálfstjórn, lauslæti og vanhæfni til að lita á langtímamarkmið raunsæum augum. Uppeldi og æska hafa sitt að segja en þar má nefna afbrot á unglingsárum og hegðunarvandamál í æsku.
Andfélagsleg persónuleikaröskun
Andfélagsleg persónuleikaröskun er undirflokkur siðblindu. Hún einkennist af hirðuleysi um tilfinningar annarra og vanhæfni til að viðhalda samböndum þó auðvelt þyki að mynda þau. Það sem eðlilegt þykir í samfélaginu fer einstaklingurinn á mis við og fylgir ekki óskráðu reglum samfélagsins. Hann hefur „stuttan þráð“ og er stutt í ofbeldishneigð og finnur ekki til samviskubits vegna gerða sinna. Þá kennir hann öðrum í samfélaginu um gerðir sínar, sbr. Fritzl, nasisma og móður hans.

Dómur & afleiðingar
Dómur
Þann 19. mars 2009 var kveðinn upp dómur í Fritzl-málinu. Hann var dæmdur til lífstíðarvistar á lokaðri stofnun. Hann var fundinn sekur fyrir að fangelsa dóttur sína í 24 ár, sem og börn þeirra og vanræskslu sem orsakaði dauða Michaels. Fritzl játaði ásökunum um sifjaspell og sviptingu frelsis. Neitaði hann hinsvegar ásökunum um þrælkun, manndráp og mótmælti nauðgunarákvæði, en saksóknarnefndin hafði ákært hann fyrir meira en 3000 nauðganir yfir árin 24.
Afleiðingar
Líkt og gefur að skilja standa Elizabeth og börn hennar frammi fyrir miklum andlegum sem og líkamlegum vandkvæðum. Lítil rými og hreyfingarleysi frá fæðingu hafa skapað vandamál í baki hjá börnunum. Þá eru þau einnig með öllu óvön stórum svæðum og eðlilegri ljósbirtu. Þau kunna þá engin deili á samskiptum utan fjölskyldunnar og kunna ekki að bregðast við ytri aðstæðum. Bendir þá allt til þess að þau muni öll þurfa að takast á við áfallastreituröskun.

Secrets of the Austrian Cellar
Hér að neðan má sjá heimildamynd í 5 hlutum um voðaverk Joseph Fritzl.